Emil og félagar töpuðu

Emil í baráttunni í dag.
Emil í baráttunni í dag. AFP

Emil Hallfreðsson og félagar hans í Udinese þurftu að sætta sig við 0:1 tap gegn Roma á heimavelli í efstu deild ítölsku knattspyrnunnar, Seríu A. 

Belgíski landsliðsmaðurinn Radja Nainggolan skoraði eina mark leiksins eftir aðeins 12 mínútur en skömmu síðar klikkaði Edin Dzeko úr víti fyrir Roma. 

Emil byrjaði á bekknum en hann kom inn á á 69. mínútu. 

Roma er í 2. sæti, einu stigi á eftir toppliði Juventus sem á tvo leiki til góða á meðan Udinese siglir lygnan sjó í 11. sæti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert