Viðar Örn hetjan í grannaslag

Viðar Örn Kjartansson í leik með Maccabi Tel Aviv.
Viðar Örn Kjartansson í leik með Maccabi Tel Aviv. AFP

Viðar Örn Kjartansson reyndist hetja Maccabi Tel Aviv í kvöld þegar liðið lagði granna sína í Hapoel Tel Aviv, 1:0, í ísraelsku úrvalsdeildinni.

Mark Viðars kom strax á níundu mínútu eftir frábæra sendingu frá Tal Ben Chaim og það dugði til sigurs. Þetta var áttunda mark Selfyssingsins á tímabilinu, en með sigrinum komst Maccabi Tel Aviv upp í annað sæti deildarinnar. Liðið hefur 34 stig og er átta stigum frá toppnum.

Viðar er nú fjórði markahæstur í deildinni. Tveir hafa skorað tíu mörk og samherji hans, fyrrnefndur Chaim, hefur skorað níu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert