Sara byrjar í Meistaradeildinni

Sara Björk Gunnarsdóttir rís hér hæst í fagnaðarlátum Wolfsburg.
Sara Björk Gunnarsdóttir rís hér hæst í fagnaðarlátum Wolfsburg. Ljósmynd/vfl-wolfsburg.de

Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, er á sínum stað í byrjunarliði Wolfsburg sem mætir Evrópumeisturum Lyon í 8 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Um er að ræða fyrri leik liðanna, en leikið er á heimavelli Wolfsburg. Sara og lið hennar sló Glódísi Perlu Viggósdóttur og lið hennar Eskilstuna úr leik í 16 liða úrslitunum, samtals 8:1, á meðan Lyon slátraði Zürich samtals 17:0.

Áður hafði Wolsburg slegið út Chelsea í 32 liða úrslitunum á meðan Lyon sló út lið Avaldsnes sem þá var skipað þeim Hólmfríði Magnúsdóttur og Þórunni Helgu Jónsdóttur.

Lið Wolfsburg: Schult, Fischer, Sara Björk Gunnarsdóttir, Peter, Blässe, Popp, Harder, Dickenmann, Graham Hansen, I. Kerschowski, Bussaglia

Lið Lyon: Bouhaddi, Renard, Kumagai, Majri, Le Sommer, Marozsán, Buchanan, Bremer, Abily, Seger, Morgan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert