Leikvangurinn í ljósum logum

Leikvangurinn var í ljósum logum.
Leikvangurinn var í ljósum logum. Ljósmynd/Twitter

Félagið hans Carlos Tévez, Shanghai Shenhua í Kína, varð fyrir áfalli í dag þegar kviknaði í leikvangi liðsins og skemmdist hann nokkuð.

Ekki urðu slys á fólki og BBC greinir frá því að eldurinn hafi ekki valdið skemmdum á vellinum sjálfum og að stúkurnar hafi að mestu sloppið. Eldurinn var þó töluverður en virtist einskorðast við klæðningu að utan.

Þjálfari liðsins er Gus Poyet sem áður stýrði Brighton á Englandi, en Tévez var keyptur til liðsins á 40 milljónir punda í fyrra. Þá eru þeir Demba Ba og Obafemi Martins sem einnig léku í ensku úrvalsdeildinni á mála hjá liðinu.

Næsti heimaleikur liðsins á að fara fram 16. apríl.

Carlos Tévez með búning liðsins.
Carlos Tévez með búning liðsins. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert