PSG fór örugglega áfram

Sabrina Delannoy fagnar marki sínu fyrir Paris Saint-Germain með samherjum …
Sabrina Delannoy fagnar marki sínu fyrir Paris Saint-Germain með samherjum sínum. AFP

Paris Saint Germain komst örugglega áfram í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu kvenna, en liðið vann 2:0-sigur gegn Barcelona í seinni leik liðanna í undanúrslitum á Parc des Princes í París í dag. 

Franski varnarmaðurinn Sabrina Delannoy skoraði fyrra mark Paris Saint Germain úr vítaspyrnu og spænski miðvallarleikmaðurinn Miriam Diéguez varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark.  

Paris Saint Germain vann einvígið samanlagt, 5:1, en liðið mætir annaðhvort Lyon eða Manchester City í úrslitaleiknum.

Lyon og Manchester City mætast í seinni leik liðanna á Parc Olympique Lyonnais í Lyon. Lyon stendur betur að vígi, en liðið hafði betur, 3:1, í fyrr leik liðanna í Manchester.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert