Kylian Mbappe fer til Real Madrid

Kylian Mbappe.
Kylian Mbappe. Ljósmynd/AFP

Þær fregnir berast frá Spáni að Spánar- og Evrópumeistarar Real Madrid hafi náð samkomulagi við Mónakó um kaup á framherjanum Kylian Mbappe.

Talið er að Real Madrid greiði samtals 180 milljónir evra fyrir Mbappe sem er 18 ára gamall og sló í gegn með Mónakó á síðustu leiktíð. Sagt er að hann muni gera sex ára samning við spænska stórliðið.

Flest af stærstu liðunum í Evrópu hafa verið á höttunum eftir Mbappe sem fékk tækifæri fyrst með aðalliði Mónakó fyrir tveimur árum. Hann lék sinn fyrsta leik með franska A-landsliðinu í mars og hefur spilað fjóra leiki með því.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert