Brasilíumaðurinn Eder var á skotskónum þegar Inter hafði betur gegn þýska meistaraliðinu Bayern München í viðureign liðanna á International Champions Cup í Singapúr í dag.
Ítalska liðið hrósaði 2:0 sigri og skoraði Eder bæði mörk leiksins á 8. og 30. mínútu leiksins. Króatinn Ivan Persic lagði upp síðara mark Inter en hann hefur verið sterklega orðaður við Manchester United síðustu daga og vikur.