Ísland leikur á Eskişehir Yeni Stadyumu

Strákarnir okkar mæta Tyrkjum 6. október.
Strákarnir okkar mæta Tyrkjum 6. október. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mætir Tyrklandi föstudaginn 6. október í undankeppni HM 2018. Tyrkir hafa nú staðfest hvar leikurinn fer fram, en hann verður á Eskişehir Yeni Stadyumu í Eskisehir. Borgin er í norðvesturhluta landsins, en íbúar hennar eru um 800.000.

Völlurinn opnaði seint í október á síðasta ári og því glænýr. Hann er heimavöllur Eskisehirspor sem leikur í tyrknesku úrvalsdeildinni. Hann tekur 34.930 manns í sæti, en Tyrkland leikur einnig gegn Króatíu 5. september.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert