Neymar brosti er hann sá rautt (myndband)

Neymar gengur af velli eftir í gær.
Neymar gengur af velli eftir í gær. AFP

Dýrasti knattspyrnumaður allra tíma, Neymar, fékk að líta rauða spjaldið í 2:2-jafntefli PSG og Marseille í frönsku A-deildinni í knattspyrnu í gær. Neymar fékk sitt annað gula spjald undir lok leiksins eftir viðskipti sín við Lucas Ocampos, leikmann Marseille. 

Ocampos sparkaði Neymar niður og Brasilíumaðurinn brást illa við og veittist að Ocampos sem féll í grasið. Þeir fengu báðir gult spjald fyrir viðskipti sín. Neymar virtist vita upp á sig sökina því hann brosti um leið og rauða spjaldið fer á loft. Myndband af atvikinu má sjá hér að neðan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert