Fjórða mark Söru í Meistaradeildinni (myndskeið)

Sara Björk var á skotskónum með Wolfsburg í gær.
Sara Björk var á skotskónum með Wolfsburg í gær. Ljósmynd/Wolfsburg

Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði þriðja mark þýska meistaraliðsins Wolfsburg þegar liðið gerði 3:3 jafntefli gegn ítalska liðinu Fiorentina í síðari viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gær.

Þetta var fjórða mark Söru í Meistaradeildinni á tímabilinu en markið má sjá í meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert