Sá markahæsti settur í agabann

Pierre-Emerick Aubameyang er mikill markahrókur.
Pierre-Emerick Aubameyang er mikill markahrókur. AFP

Framherjinn Pierre Emerick Aubameyang, leikmaður 1. deildarliðs Dortmund í knattspyrnu, hefur verið tekinn út úr liðinu fyrir næsta leik liðsins fyrir agabrot.

Ekki kemur fram hvað hinn 28 ára gamli landsliðsmaður Gabon gerði af sér, en þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann er settur í bann hjá félaginu. Í fyrra var það eftir að hafa farið í skemmtiferð til Ítalíu án leyfis á miðju tímabili.

Hinn 28 ára gamli Aubameyang hefur lengi verið eftirsóttur af stærstu liðum Evrópu, en hann er markahæsti leikmaður Dortmund í deildinni í vetur með 10 mörk, einu minna en Robert Lewandowski sem er markahæsti maður deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert