18 mörk í átján leikjum

Albert Guðmundsson er fyrirliði U21-landsliðsins.
Albert Guðmundsson er fyrirliði U21-landsliðsins. mbl.is/Golli

Albert Guðmundsson var enn og aftur á skotskónum með unglingaliði PSV í hollensku B-deildinni í knattspyrnu í kvöld.

Albert skoraði síðara mark PSV í 2:0 sigri gegn Utrecht og var þetta 18. mark hans í síðustu 18 leikjum með liðinu en Albert leikur í stöðu kantmanns.

Albert hefur verið í hópnum með aðalliði PSV í flestum leikjum þess í hollensku úrvalsdeildinni á tímabilinu og hefur komið við sögu í þremur þeirra en PSV er með átta stiga forskot á Ajax í toppsæti deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert