Aron skoraði í stórsigri

Aron Sigurðarson fagnar
Aron Sigurðarson fagnar Ljósmynd/Start

Aron Sigurðarson og samherjar hans hjá Start áttu ekki í neinum vandræðum með að vinna Jerv á útivelli í norsku B-deildinni í fótbolta í dag, 7:1. 

Aron var í byrjunarliði Start og lék allan leikinn. Hann skoraði þriðja mark liðsins á 30. mínútu. Start er í öðru sæti deildarinnar, níu stigum á eftir toppliði Álasunds og tveimur stigum fyrir ofan Viðar Ara Jónsson og félaga í Sandefjord. 

Aron er búinn að leika vel á leiktíðinni og skora 13 mörk í 26 leikjum í deildinni. Aron skoraði aðeins eitt mark í 17 leikjum á síðustu leiktíð. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert