Ragna og Katrín meistarar

Ragna Ingólfsdóttir vann tvöfalt á alþjóðlega badmintonmótinu í dag.
Ragna Ingólfsdóttir vann tvöfalt á alþjóðlega badmintonmótinu í dag. Brynjar Gauti

Ragna Ingólfsdóttir og Katrín Atladóttir báru sigur úr býtum í tvíliðaleik á alþjóðlega badmintonmótinu sem lauk í TBR húsinu í dag. Þær Ragna og Katrín höfðu betur í úrslitaleiknum gegn Söru Jónsdóttur og Tinnu Helgadóttur, 2:1, (21:18, 21:23, 21:17).

Fyrr í dag fagnaði Ragna sigri í einliðaleik með því að leggja Trine Niemeier frá Danmörku mjög auðveldlega en þetta er annað alþjóðlega mótið sem Ragna sigrar í.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert