Enn einn titill Hafsteins Ægis

Enn einn titillinn til Hafsteins.
Enn einn titillinn til Hafsteins. JIM Smart

Hafsteinn Ægir Geirsson bætti enn einum titlinum í safn sitt í gærkvöldi þegar hann sigraði Íslandsmeistaramótið í tímatöku á hjólreiðum en keppt var á Krísuvíkurvegi.

Varð Hafsteinn rúmri mínútu á undan næsta manni, Gunnlaugi Jónassyni, en fyrirfram var búist við harðari keppni milli þeirra tveggja.

Í kvennaflokki sigraði Karen Axelsdóttir með yfirburðum. Kláraði hún 20 kílómetra vegalengdina á 31.48 mínútu en sú næsta kom á tímanum 36.45.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert