Ásgeir skaut vel í Þýskalandi

Ásgeir Sigurgeirsson.
Ásgeir Sigurgeirsson. mbl.is

Ásgeir Sigurgerisson úr Skotfélagi Reykjavíkur náði flottum árangri á sterku alþjóðlegu móti í Þýskalandi í dag.

Ásgeir fékk 579 stig með loftskammbyssu í dag og var aðeins einu stigi frá því að komast í úrslit, en hann býr sig nú undir EM sem fram fer í Finnlandi í næsta mánuði. 

Skorið hjá Ásgeiri í dag var flott, 95, 97, 100, 98, 96, 93 og 22x-tíur. Hann endaði í 13. sæti, en keppendur voru alls 83 talsins.



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert