Jón Sigurður Gunnarsson og Eyþór Örn Baldursson unnu í dag báðir til verðlauna á Norðurlandamótinu í áhaldafimleikum sem haldið er í Halmstad í Svíþjóð.
Jón Sigurður vann til silfurverðlauna í karlaflokki fyrir æfingar sínar í hringjum í úrslitunum í dag og Eyþór Örn, Íslandsmeistari unglinga, hlaut bronsverðlaun fyrir æfingar sínar í hringjunum í unglingaflokki.
Í gær vann kvennalandsliðið til bronsverðlauna í liðakeppninni.