Mögnuð aðferð til að losna við tönn

Bryan Clay.
Bryan Clay. Mynd/Twitter.

Tugþrautarkappinn og Ólympíugullverðlaunahafinn Bryan Clay fór afar óhefðbundna leið til þess að hjálpa dóttur sinni að losna við tönn.

Hann birti þetta ótrúlega myndskeið á Twitter-síðu sinni í gær þar sem hann var búinn að binda spotta við lausa tönn dóttur sinnar.

Clay nægði ekki að toga í spottann eða binda hinn endann við hurðarhún, nei spjót varð fyrir valinu. Tilraunin svínvirkaði hjá feðginunum eins og sjá má hér að neðan.

Clay vann Ólympíugull í tugþraut í Beijing 2008 og fékk silfur í Aþenu fjórum árum áður en hann varð einnig heimsmeistari í greininni utanhúss árið 2005 í Helsinki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert