Enn eitt heimsmet hjá Ledecky

Katie Ledecky.
Katie Ledecky. AFP

Hin 18 ára gamla Katie Ledecky frá Bandaríkjunum bætti í morgun eigið heimsmet í 1500 metra skriðsundi í undanrásum á heimsmeistaramótinu í sundi sem fram fer í Kazan í Rússlandi.

Ledecky, sem einnig á heimsmetin í 400 og 800 metra skriðsundi, synti á tímanum 15.27,71 mínútu og bætti hún heimsmetið um rúma eina sekúndu. Þetta er í áttunda sinn sem Ledecky setur heimsmet og í fjórða skipti sem hún gerir það í 1500 metra skriðsundi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert