Eygló íþróttamaður ársins 2015

Eygló Ósk Gústafsdóttir með verðlaunagripinn eftirsótta. Hún er íþróttamaður ársins …
Eygló Ósk Gústafsdóttir með verðlaunagripinn eftirsótta. Hún er íþróttamaður ársins 2015. Ljósmynd/Daníel Rúnarsson

Eygló Ósk Gústafsdóttir, sundkona úr Ægi í Reykjavík, er íþróttamaður ársins 2015 í kjöri Samtaka íþróttafréttamanna en niðurstaðan var kynnt í Hörpu rétt í þessu.

Eygló vann all öruggan sigur í kjörinu en hún fékk samtals 470 stig af 520 mögulegum frá 26 meðlimum í Samtökum íþróttafréttamanna. Hún er fimmta konan í sextíu ára sögu kjörsins sem hlýtur þennan eftirsótta titil og önnur sundkonan en Ragnheiður Runólfsdóttir var kjörin árið 1991.

Gylfi Þór Sigurðsson, knattspyrnumaður hjá Swansea City, varð annar með 350 stig og þriðja varð sundkonan Hrafnhildur Lúthersdóttir úr Sundfélagi Hafnarfjarðar með 229 stig.

Lokaúrslit kjörsins urðu sem hér segir:

  1. Eygló Ósk Gústafsdóttir (sund)              470 stig
  2. Gylfi Þór Sigurðsson (knattspyrna)                350
  3. Hrafnhildur Lúthersdóttir (sund)          229
  4. Guðjón Valur Sigurðsson (handknattleikur)  202
  5. Fanney Hauksdóttir (kraftlyftingar)     139
  6. Jón Arnór Stefánsson (körfuknattleikur)        137
  7. Aron Einar Gunnarsson (knattspyrna)         128
  8. Sara Björk Gunnarsdóttir (knattspyrna)      63
  9. Aníta Hinriksdóttir (frjálsíþróttir)    44
  10. Helgi Sveinsson (frjálsíþróttir fatlaðra)              29
  11. Ragnar Sigurðsson (knattspyrna) 16
  12. Hannes Þór Halldórsson (knattspyrna)      15
  13. Aron Pálmarsson (handknattleikur)               12
  14. Irina Sazanova (fimleikar)      9
  15. Hanna Rún Bazev Óladóttir (dans)     8
  16. Ásgeir Sigurgeirsson (skotfimi)            7
  17. Dagný Brynjarsdóttir (knattspyrna)            6
  18. Birkir Bjarnason (knattspyrna)      6
  19. Ásdís Hjálmsdóttir (frjálsíþróttir)  5
  20. Anton Sveinn McKee (sund)                5
  21. Birgir Leifur Hafþórsson (golf)              4
  22. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir (golf)      4
  23. Hlynur Bæringsson (körfuknattleikur)           4
  24. Þormóður Jónsson (júdó)     2
  25. Helena Sverrisdóttir (körfuknattleikur)        1
  26. Júlían J. K. Jóhannsson (kraftlyftingar)             1
  27. Guðbjörg Gunnarsdóttir (knattspyrna)     1
  28. Norma Dögg Róbertsdóttir (fimleikar)             1
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert