Óstöðvandi Djokovic sigraði Murray

Serbinn Novak Djokovic sigraði Bretann Andy Murray í úrslitaleik Opna ástalska mótsins í tennis nú fyrir stundu. Sigur Djokovic var öruggur en hann vann 3:0 í lotum talið (6:1 7:5 7:6).

Djokovic, sem er efstur á heimslistanum í tennis, hefur þar með unnið Opna ástralska mótið sex sinnum. Samtals hefur hann nú unnið ellefu risamót á ferlinum, þar af stóð hann uppi sem sigurvegari á þremur af fjórum risamótum ársins í fyrra.

Murray tapaði hins vegar í fimmta skipti í úrslitum Opna ástralska mótsins en hann hefur aldrei náð í gullmedalíu þar. 

„Mér finnst eins og þetta hafi gerst áður,“ sagði Murray glottandi eftir úrslitaleikinn. „Ég vil óska Novak (Djokovic) innilega til hamingju með sigurinn. Það er ótrúlegt að vinna þetta mót sex sinnum og síðasta ár hefur verið magnað hjá honum.“

Novak Djokovic fagnar eftir að hafa tryggt sér sigurinn á …
Novak Djokovic fagnar eftir að hafa tryggt sér sigurinn á Opna ástralska mótinu í tennis. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert