Stórmóti ÍR lokið

Kolbeinn Höður Gunnarsson fagnar sigri.
Kolbeinn Höður Gunnarsson fagnar sigri. mbl.is/Árni Sæberg

Stórmóti ÍR í frjálsum íþróttum lauk í dag en keppt var í Laugardalshöll.

Í 60 metra grindahlaupi karla stóð Ísak Óli Traustason úr UMFSS uppi sem sigurvegari en hann hljóp á 8,71 sekúndu.

Í stangarstökki karla vann Ingi Rúnar Kristinsson úr Breiðabliki en hann stökk yfir 4,73 metra.

Í hástökki karla vann Bjarki Viðar Kristjánsson úr Breiðabliki þegar hann stökk 1,87 metra.

Í kúluvarpi kvenna vann Thelma Lind Kristjánsdóttir úr ÍR með kasti upp á 12,97 metra.

Í 200 metra hlaupi kvenna vann Arna Stefanía Guðmundsdóttir úr FH á 24,60 sekúndum.

Í 200 metra hlaupi karla vann Kolbeinn Höður Gunnarsson úr FH á 21,78 sekúndum.

Í langstökki kvenna vann Irma Gunnarsdóttir með stökki upp á 5,33 metra.

Í 800 metra hlaupi karla vann Kristinn Þór Kristinsson úr Selfossi á 1:53,19 mínútum.

Í 800 metra hlaupi kvenna var Rebekka Fuglö úr Treysti frá Færeyjum eini keppandinn og hljóp á 2:14,23 mínútum.

Arna Stefanía Guðmundsdóttir sigrar.
Arna Stefanía Guðmundsdóttir sigrar. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert