Hlauparar ársins krýndir

Langhlauparar ársins, Elísabet Margeirsdóttir og Þorbergur Ingi Jónsson.
Langhlauparar ársins, Elísabet Margeirsdóttir og Þorbergur Ingi Jónsson. Ljósmynd / hlaup.is

Þorbergur Ingi Jónsson og Elísabet Margeirsdóttir voru langhlauparar ársins 2015 að mati hlaupara og lesenda hlaup.is. Verðlaunin voru afhent í sjöunda skipti í dag, sunnudaginn 7. febrúar, en verðlaun voru veitt fyrir fyrstu þrjú sætin í karla- og kvennaflokki. Í öðru sæti urðu Kári Steinn Karlsson og Helga Margrét Þorsteinsdóttir. Í þriðja sæti urðu þau Stefán Guðmundsson og Sigurbjörg Eðvarðsdóttir.

Fjöldi tilnefninga barst frá lesendum hlaup.is, en nöfn 28 hlaupara bárust að þessu sinni. Kosið var á milli sex hlaupara í karlaflokki annarsvegar og kvennaflokki hinsvegar.

Fossvogshlaupið var valið götuhlaup ársins og Mt. Esja Ultra var hins vegar valið utanvegahlaup ársins. Val á hlaupum ársins var einnig kunngjört á verðlaunaafhendingunni. Fossvogshlaupið hlaut titilinn götuhlaup ársins og Mt. Esja Ultra í flokki utanvegahlaupa. Rétt eins og með valið á langhlaupurum ársins þá eru það lesendur hlaup.is sem velja hlaup ársins með einkunnagjöfum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert