Reykvísk ungmenni sigursæl

Íslenski hópurinn í Helsinki.
Íslenski hópurinn í Helsinki. Anna Lilja Sigurðardóttir

Grunnskólamót höfuðborga Norðurlanda hófst í Helsinki á mánudaginn og lýkur í dag, fimmtudag. Fyrir hverja borg keppir 41 nemandi, 14 ára og yngri, í knattspyrnu drengja, handknattleik stúlkna og frjálsum íþróttum drengja og stúlkna. Reykvísku ungmennin hafa staðið sig einstaklega vel á mótinu í ár og verið sér og sínum til sóma innan vallar sem utan.

Lið Reykjavíkur vann á mótinu í knattspyrnu drengja. Þeir sigruðu lið Kaupmannahafnar 3:0, Óslóar 2:1, Stokkhólms 7:2 og Helsinki 12:0. Þetta er þriðja árið í röð sem lið Reykjavíkur sigrar í knattspyrnu drengja á þessu móti.

Í handknattleik stúlkna varð lið Reykjavíkur í öðru sæti. Þær sigruðu Helsinki 23:10, Stokkhólm 11:10 og Kaupmannahöfn 12:11 en biðu lægri hlut fyrir sigurvegurum mótsins, liði Óslóar, 25:11. Þetta er besti árangur sem Reykjavík hefur náð í handknattleik á þessu móti og mikil gleði hjá hópnum með niðurstöðuna.

Frjálsíþróttalið stúlkna varð í 3. sæti í stigakeppni mótsins og frjálsíþróttalið drengja í 5. sæti. Keppt var í fimm greinum frjálsíþrótta: 100 metra hlaupi, kúluvarpi, hástökki, langstökki og 800 metra hlaupi. Bestum árangri í liði Reykjavíkur náðu Signý Hjartardóttir sem sigraði í kúluvarpi og Kristján Viggó Sigfinnsson sem var í öðru sætinu í hástökki.

Grunnskólamót höfuðborga Norðurlanda hefur verið haldið að vori árlega frá árinu 1948 fyrir utan eitt ár. Frá upphafi hafa höfuðborgirnar Kaupmannahöfn, Ósló, Helsinki og Stokkhólmur tekið árlega þátt í mótinu en Reykjavík tók fyrst þátt í mótinu árið 2006. Reykjavík hefur tvisvar sinnum haldið mótið, árið 2011 og árið 2014.

Í úrvalsliði Reykjavíkur sem tekur nú þátt í mótinu er 41 keppandi, fjórir þjálfarar og tveir fararstjórar. Keppendur í úrvalsliði Reykjavíkur eru 15 leikmenn í knattspyrnu drengja, 10 leikmenn í handknattleik stúlkna, 8 drengir og 8 stúlkur í frjálsum íþróttum.

Stúlkurnar sem kepptu fyrir Íslands hönd í frjálsum íþróttum.
Stúlkurnar sem kepptu fyrir Íslands hönd í frjálsum íþróttum. Ljósmynd/Anna Lilja Sigurðardóttir
Strákarnir sem kepptu fyrir Íslands hönd í frjálsum íþróttum.
Strákarnir sem kepptu fyrir Íslands hönd í frjálsum íþróttum. Ljósmynd/Anna Lilja Sigurðardóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert