Gylfi byrjar á móti Liverpool

Gylfi Þór Sigurðsson er í byrjunarliði Swansea City sem mætir …
Gylfi Þór Sigurðsson er í byrjunarliði Swansea City sem mætir Liverpool í dag. AFP

Gylfi Þór Sigurðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, er á sínum stað í byrjunarliði Swansea City sem mætir Liverpool í 22. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu karla á Anfield í dag. 

Gylfi Þór hefur leikið í öllum leikjum Swansea City í deildinni á yfirstandandi leiktíð, en hann hefur verið í byrjunarliðinu í 20 leikjum og komið inn á sem varamaður í einum leik.  

Gylfi hefur verið einn af fáum ljósum punktum í spilamennsku Swansea City á tímabilinu, en hann hefur skorað fimm mörk og lagt upp sex mörk fyrir samherja sína í deildinni i vetur.

Swansea City situr á botni deildarinnar með 15 stig, en liðið getur komist upp úr fallsæti með sigri gegn Liverpool, en leikurinn verður í beinni textalýsingu á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert