Hlynur nokkuð frá sínu besta á EM

Hlynur Andrésson.
Hlynur Andrésson. mbl.is/Eva Björk

Hlynur Andrésson úr ÍR var nú rétt í þessu að koma í mark í undanriðli 3.000 metra hlaups karla á Evrópumeistaramótinu innanhúss í frjálsum íþróttum sem fram fer í Serbíu.

Hlynur hljóp á tímanum 8:29 mínútum og var töluvert langt frá Íslandsmeti Kára Steins Karlssonar sem er 8:10,94 mínútur. Hlynur bætti það raunar á dögunum þegar hann hljóp á tímanum 8:06,69 mínútum, en það fæst ekki fullkomlega gilt sem Íslandsmet vegna stærðarinnar á brautinni.

Fyrstu fjórir keppendurnir í hvorum riðli fyrir sig komust beint í úrslit, auk þeirra fjögurra sem voru með besta tímann þar á eftir. Hlynur var skráður inn í mótið sem einn fjögurra keppenda sem ekki hafa hlaupið undir 8 mínútum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert