Aníta örugglega í úrslit

Aníta Hinriksdóttir
Aníta Hinriksdóttir mbl.is/Árni Sæberg

Aníta Hinriksdóttir er komin í úrslit í 800 metra hlaupi á Evrópumótinu í frjálsum íþróttum innanhúss í Belgrad í Serbíu. 

Hún var með næstbesta tímann af öllum í undanúrslitunum en hún hljóp á 2:02:97 sekúndum. Esther Guerrero var efst á 2:02:91 sekúndum. 

Úrslitahlaupið fer fram á morgun og þykir nokkuð líklegt að Aníta næli sér í verðlaun miðað við hlaup dagsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert