Hótel Gunnars Nelson rýmt

Gunnar Nelson berst í kvöld.
Gunnar Nelson berst í kvöld. Ljósmynd/Árni Torfason

Gunnar Nelson mun í kvöld mæta Bandaríkjamanninum Alan Jouban í UFC í London, en það er óhætt að segja að nóttin fyrir bardagann hafi ekki verið eins og best verður á kosið.

Um klukkan 23 í gærkvöldi fór brunaboði af stað á hóteli Gunnars í London og þurfti að rýma allt húsið. Fólk fann reykjarlykt, en allir hótelgestir stóðu því úti í kuldanum og biðu eftir slökkviliðinu, en gátu snúið aftur til sinna herbergja um miðnætti.

MMAfrettir.is greina frá þessu, en um er að ræða hótelið þar sem allir bardagakapparnir og starfsfólk UFC dvelja.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert