Sögulegur árangur Sturlu

Sturla Snær Snorrason á HM í St. Moritz.
Sturla Snær Snorrason á HM í St. Moritz. AFP

Sturla Snær Snorrason hafnaði í 28. sæti í síðasta móti tímabilsins í Norður-Ameríku-álfubikarnum þar sem keppt var í Mont Ste-Marie í Kanada, en keppt var í svigi og voru 100 keppendur skráðir til leiks. Þetta er í fyrsta sinn sem Sturla hafnar á meðal 30 efstu í álfukeppni.

60 keppendur komust áfram í seinni ferðina og gerði Sturla því gott betur en það. Hann fékk fyrir vikið 42,16 FIS-punkta.

Þá keppti Freydís Halla Einarsdóttir á tveimur stórsvigsmótum sem einnig voru hluti af álfubikarnum, en keppt var í Kanada. Hún hafnaði í 48. sæti fyrri keppnisdaginn og í 44. sæti þann seinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert