Bikarinn á loft hjá HK í kvöld?

Kjartan Fannar Grétarsson freistar þess að skora fyrir HK gegn …
Kjartan Fannar Grétarsson freistar þess að skora fyrir HK gegn Stjörnunni í fyrsta leik liðanna í einvíginu. mbl.is/Kristinn Magnúsosn

Ríkjandi Íslandsmeistarar HK geta tryggt sér sinn sjötta meistaratitil í röð þegar karlalið félagsins í blaki mætir Stjörnunni í þriðja einvígisleik liðanna í Garðabæ klukkan 19.30 í kvöld.

Staðan í einvíginu er 2:0 fyrir HK en þrjá sigra þarf til þess að tryggja sér titilinn. Með sigri getur Stjarnan hins vegar haldið spennu í einvíginu og tryggt fjórða leikinn á mánudagskvöld.

Aðeins Þróttur R. hefur unnið fleiri Íslandsmeistaratitla í röð en HK, en á árunum 1981-1987 vann liðið sjö titla í röð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert