Bryndís Rún hefur lokið keppni á HM

Bryndís Rún stingur sér í laugina í Búdapest.
Bryndís Rún stingur sér í laugina í Búdapest. Ljósmynd/Sundsambandið

Bryndís Rún Hansen hefur lokið keppni á heimsmeistaramótinu í sundi í 50 metra laug sem haldið er í Búdapest í Ungverjalandi.

Bryndís Rún keppti í morgun í undanrásum í 50 metra flugsundi og endaði í 31. sæti af 58 keppendum. Hún synti á tímanum 27,17 sekúndum en til þess að komast í undanúrslitin þurfti að synda á 26,34 sekúndum.

Bryndís á Íslandsmetið í greininni, 26,68 sekúndur, sem hún setti á Evrópumeistaramótinu í London í fyrra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert