Tvö íslensk gull í Andorra

Íslenski hópurinn á mótinu.
Íslenski hópurinn á mótinu. Ljósmynd/kai.is

Fjórðu smáþjóðaleikarnir í karate voru haldnir í Andorra helgina 29. september til 1. október 2017. Keppt var bæði í kata og kumite í unglinga- og fullorðinsflokkum. Þar mættu til leiks 411 keppendur frá 8 löndum, Andorra, Kýpur, Mónakó, Lúxemborg, San Marinó, Liechtenstein, Möltu og Íslandi. Keppendur íslenska landsliðsins náðu frábærum árangri og unnu til fjölda verðlauna.

Þetta er í fyrsta sinn sem Íslendingar eignast smáþjóðameistara í karate, en það eru þau Aron Anh Ky Huynh smáþjóðameistari í kata 16-17 ára unglinga frá karatedeild ÍR og Íveta Ívanova smáþjóðameistari í kumite 16-17 ára frá karatedeild Fylkis. Aron keppti einnig í  fullorðinsflokki í kata á mótinu. Ólafur Engilbert Árnason karatedeild Fylkis komst í úrslit í kumite fullorðinna í sínum þyngdarflokki.

Íslenska landsliðið í karate á smáþjóðleikunum í Andorra voru: Aron Bjarkason, Aron Anh Huynh, Arna Katrín Kristjánsdóttir, Ágúst Heiðar Sveinbjörnsson, Elías Snorrason, Íveta Ívanova,  Laufey Lind Sigþórsdóttir, María Helga Guðmundsdóttir, Máni Karl Guðmundsson, Svana Katla Þorsteinsdóttir, Ólafur Engilbert Árnason og Óttar Ingvarsson

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert