Jón Margeir sneri aftur í laugina og setti met

Jón Margeir Sverrisson.
Jón Margeir Sverrisson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Íslandsmeistaramót Íþróttasambands fatlaðra í sundi í 25 metra laug fór fram í Laugardalslaug um síðastliðna helgi. Tvö ný Íslandsmet litu dagsins ljós og annað þeirra sett í sundhluta SSÍ en ÍM25 hjá ÍF þetta árið fór fram á milli mótshluta hjá Sundsambandi Íslands.

Jón Margeir Sverrisson er greinilega ekki dottinn úr gírnum en hann keppti um helgina og var skráður til leiks í 1.500 metra skriðsundi á mótshluta SSÍ. Þar hafnaði Jón í 6. sæti á nýju Íslandsmeti er hann kom í bakkann á 16:46,34 mínútum

Jón Margeir er fyrrverandi ólympíumeistari í 200 metra skriðsundi, en hann hefur að mestu snúið sér að frjálsum íþróttum síðustu misseri.

Þá setti Agnar Ingi Traustason frá ÍFR nýtt Íslandsmet í flokki SB5 þegar hann kom í bakkann á 54,17 sekúndum í 50 metra bringusundi en Agnar sem er tiltölulega nýr í greininni fer vel af stað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert