Enn einn sigur Aftureldingar á HK

HK og Afturelding léku til úrslita síðasta vetur.
HK og Afturelding léku til úrslita síðasta vetur. mbl.is/Kristinn Magnússon

Afturelding lagði HK í þriðja skipti á leiktíðinni í Mizuno-deild kvenna í blaki í gær, 3:1. Fyrsta hrinan var æsispennandi en að lokum hafði Afturelding betur, 27:25. Önnur hrinan var óspennandi, 25:13, Aftureldingu í vil. HK beit frá sér í þriðju hrinu og vann 25:22. Afturelding var hins vegar mun sterkari aðilinn í þriðju hrinu og vann örugglega, 25:10 og þar með leikinn.

Haley Rena Hampton var stigahæst hjá Aftureldingu með 20 stig og Hjördís Eiríksdóttir gerði 14 fyrir HK. Afturelding er á toppi deildarinnar með 23 stig eftir níu leiki en HK er í fjórða sæti með 12 stig eftir tíu leiki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert