Besta stökk Íslendings í 60 ár

Daníel Ingi Egilsson.
Daníel Ingi Egilsson. mbl.is/Arnþór Birkisson

Daníel Ingi Egilsson úr FH náði frábærum árangri á Nordic-Baltic U23 meistaramótinu í frjálsíþróttum sem fór fram í Malmö í Svíþjóð um helgina þegar hann lenti í öðru sæti í þrístökki.

Öðru sætinu náði Daníel Ingi með stökki upp á 15,51 metra, sem er lengsta stökk Íslendings í greininni í 60 ár. Meðvindur í stökkinu var +2,1 m/s og var hann ögn of mikill til þess að það teldist löglegt þar sem stökk teljast ólögleg ef meðvindur fer yfir 2,0 m/s.

Lengsta löglega stökk Daníels Inga í keppninni var 15,31 metrar (+1,9 m/s) og er það lengsta löglega stökk Íslendings í 60 ár. Bætti hann þar með eigin árangur um 53 sentimetra. Daníel Ingi stökk alls þrisvar sinnum yfir 15,30 metra í dag.

Líkt og greint er frá á Silfrinu stekkur Daníel Ingi upp í annað sæti afrekalistans í þrístökki með þessu árangri, en einungis Íslandsmethafinn Vilhjálmur Einarsson hefur stokkið lengra. Íslandsmet Vilhjálms er 16,70 metrar, sem hann setti á Meistaramóti Íslands árið 1960.

Vilhjálmur á einnig aldursflokkametið í 20-22 ára flokki, 16,26 metra, sem hann setti á Ólympíuleikunum í Melbourne í Ástralíu árið 1956 og vann þá til silfurverðlauna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert