Gísli íþróttamaður ársins í fyrsta sinn

Gísli Þorgeir, ánægður með verðlaunin í kvöld.
Gísli Þorgeir, ánægður með verðlaunin í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Handknattleiksmaðurinn Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikmaður Magdeburg í Þýskalandi, var í kvöld útnefndur íþróttamaður ársins 2023 af Samtökum íþróttafréttamanna en hann vann nokkuð öruggan sigur í kjörinu og fékk samtals 500 stig.

Keppinautar hans um titilinn voru Anton Sveinn McKee, sundmaður úr Sundfélagi Hafnarfjarðar, sem fékk silfurverðlaun í 200 metra bringusundi á Evrópumótinu í 25 metra laug í desember, og Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu og fyrirliði Bayern München sem hún varð þýskur meistari með í vor.

Alls fengu 23 íþróttamenn atkvæði í kjörinu og stigin féllu sem hér segir en 28 íþróttafréttamenn kusu og völdu tíu íþróttamenn hver þar sem sá efsti fékk 20 stig, næsti 15, þriðji 10 og aðrir frá sjö og niður í eitt stig.

1. Gísli Þorgeir Kristjánsson, Magdeburg, handknattleikur   500
2. Anton Sveinn McKee, Sundfélag Hafnarfjarðar, sund   372
3. Glódís Perla Viggósdóttir, Bayern München, knattspyrna  326
4. Andrea Kolbeinsdóttir, ÍR, frjásíþróttir  101
5. Sveindís Jane Jónsdóttir, Wolfsburg, knattspyrna   94
6.
Elvar Már Friðriksson, PAOK Saloniki, körfuknattleikur   93
7. Jóhann Berg Guðmundsson, Burnley, knattspyrna   73
8. Sóley Margrét Jónsdóttir, Breiðabliki, kraftlyftingar   69
9. Thelma Aðalsteinsdóttir, Gerplu, fimleikar   53
10. Snæfríður Sól Jórunnardóttir, Aalborg Svömmeklub, sund   47
11. Baldvin Þór Magnússon, UFA, frjálsíþróttir   37
12. Jóhanna Margrét Snorradóttir, hestaíþróttir   35
13. Albert Guðmundsson, Genoa, knattspyrna   31
14. Kristín Þórhallsdóttir, ÍA, kraftlyftingar   30
15. Snorri Einarsson, Skíða, skíðaganga   28
16. Eygló Fanndal Sturludóttir, Lyftingafélagi Reykjavíkur, lyftingar   27
17. Bjarki Már Elísson, Veszprém, handknattleikur   26
18. Viktor Gísli Hallgrímsson, Nantes, handknattleikur   24
19. Hákon Rafn Valdimarsson, Elfsborg, knattspyrna   22
20. Hákon Arnar Haraldsson, FCK/Lille, knattspyrna   20
21. Haraldur Franklín Magnús, Golfklúbbi Reykjavíkur, golf   19
22. Ragnhildur Kristinsdóttir, Golfklúbbi Reykjavíkur, golf   10
23. Sandra Erlingsdóttir, Metzingen, handknattleikur   7

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert