Heiðar á höggi yfir pari í Sviss

Heiðar Davíð Bragason.
Heiðar Davíð Bragason. Eyþór Árnason

Heiðar Davíð Bragason, atvinnukylfingur úr GR, lék á 73 höggum eða höggi yfir pari á EPD-atvinnumótaröðinni í Sviss í dag. Heiðar fékk tvo fugla (-1) og þrjá skolla (+1) og er hann í 29.-36. sæti af alls 123 kylfingum sem hófu keppni.

Þetta er fyrsta mótið hjá Heiðari á þessari mótaröð en hann er búsettur í Lúxemborg og mun hann leika á EPD-mótaröðinni í sumar.  

Staðan

Dennis Küpper frá Þýskalandi er efstur á 5 höggum undir pari vallar.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert