Rocco fékk 64 milljónir kr. fyrir annað sætið

Rocco Mediate átti ekki í vandræðum með að óska Tiger Woods til hamingju með sigurinn. stækka

Rocco Mediate átti ekki í vandræðum með að óska Tiger Woods til hamingju með sigurinn. Reuters

mbl.is Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is

Fáir vissu hver bandaríski kylfingurinn Rocco Mediate var áður en Opna bandaríska meistaramótið hófst á Torrey Pines vellinum s.l. fimmtudag. Mediate hefur leikið á PGA-mótaröðinni í yfir tvo áratugi og á þeim tíma hefur hann „önglað“ saman um einum milljarði í verðlaunafé og sigrað á 5 mótum en þrátt fyrir það var hann ekki á meðal þekktustu kylfinga heims.

Það má með sanni segja að Mediate hafi unnið hug og hjörtu allra þeirra sem fylgdust með gangi mála á lokadögum Opna bandaríska meistaramótsins þar sem að 45 ára gamall bakveikur og höggstuttur kylfingur var nærri því búinn að sigra besta kylfing sögunnar – Tiger Woods.

„Ég gat ekki meira og teighöggið í bráðabananum var lélegt.  Á þeim tíma átti ég ekki meiri orku en ég er stoltur af því sem ég gerði. Ég veitti besta kylfing heims harða keppni og ef púttin á fyrstu holunum hefðu dottið ofaní hefðu úrslitin kannski orðið önnur. Þetta var frábær leikur og ég get sagt sögur sem aðrir geta ekki sagt af viðureignum þeirra við Tiger Woods.  

Fyrir sigurinn fékk Tiger Woods um 106 milljónir kr. en Rocco Mediate fékk 64 milljónir kr. Lee Westwood frá Englandi varð þriðji og fékk hann um 40 milljónir kr. fyrir þriðja sætið.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Golf — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Laugardaginn 19. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Mánudaginn 7. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Mánudaginn 16. apríl

Föstudaginn 13. apríl

Fimmtudaginn 12. apríl

Sunnudaginn 8. apríl

Laugardaginn 7. apríl


finnur.is