Haraldur í 16 manna úrslit á N-Írlandi

Haraldur Franklín Magnús.
Haraldur Franklín Magnús. mbl.is/Eva Björk

Kylfingurinn Haraldur Franklín Magnús er kominn í sextán manna úrslitin á meistaramóti áhugamanna í golfi sem nú stendur yfir á Norður-Írlandi.

Haraldur vann í gær Jordan Smith frá Englandi á 19. holu í annarri umferð mótsins en áður hafði hann sigraði Nicolai Tinning frá Danmörku í fyrstu umferðinni þar sem 64 kylfingar hófu keppni.

Haraldur er þessa stundina að spila við John Kinnear frá Englandi í sextán manna úrslitunum.

Hann komst í holukeppnina eftir höggleik sem fram fór fyrr í vikunni og stóð yfir í tvo daga. Þar kepptu einnig þeir Andri Þór Björnsson, Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Axel Bóasson en þeir komust ekki áfram. Minnstu munaði þó hjá Andra  sem skorti eitt högg til að fara í holukeppnina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert