Birgir Leifur á fimm undir pari

Birgir Leifur Hafþórsson fer vel af stað.
Birgir Leifur Hafþórsson fer vel af stað. golf.is

Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG er kominn í hús eftir fyrsta hring á Íslandsmótinu í höggleik, þar sem hann hefur titil að verja. Birgir Leifur lék fyrsta hringinn á 66 höggum eða fimm höggum undir pari.

Birgir Leifur fékk einn örn, fimm fugla og tvo skolla á holunum átján, en hann var í holli með Gísla Svanbergssyni og Heiðari Davíð Bragasyni. Gísli er á þremur höggum undir pari, en hann fékk skramba á 18. braut.

Haraldur Franklín Magnús í Leirdalnum í dag.
Haraldur Franklín Magnús í Leirdalnum í dag. mbl.is/Styrmir Kári
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert