Kristján innsiglaði meistaratitilinn með sigri

Kristján Þór Einarsson er stigameistari.
Kristján Þór Einarsson er stigameistari. mbl.is/Styrmir Kári

Kristján Þór Einarsson úr Golfklúbbnum Kili fagnaði í dag sigri á Goðamótinu, lokamóti Eimskipsmótaraðarinnar sem fram fór á Jaðarsvelli í dag. Kristján Þór var þegar búinn að tryggja sér stigameistaratitilinn og innsiglaði hann með sigri á þessu lokamóti.

Þetta er hans þriðji sigur á mótaröðinni en hann var m.a. Íslandsmeistari í holukeppni fyrr í sumar. Kristján þór spilaði hringinn í dag á 67 höggum sem er jöfnun á vallarmeti sem Aron Snær Júlíusson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar átti.

Gísli Sveinbergsson úr Golfklúbbnum Keili endaði í öðru sæti eftir harða baráttu við Kristján Þór þar sem þeir skiptust á að vera í forystu en Gísli leiddi með tveimur höggum fyrir lokahringinn. í þriðja sæti varð Bjarki Pétursson úr Golfklúbbi Borgarness á 216 höggum, 3 yfir pari.

Karlaflokkur:
1.sæti : Kristján Þór Einarsson GKJ 73-70-67 = 210 (-3)
2.sæti : Gísli Sveinbergsson GK 70-71-72 = 213 (par)
3.sæti : Bjarki Pétursson GB 70-75-71 = 216 (+3)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert