Sá besti farinn heim

Rory McIlroy komst ekki í gegnum niðurskurðinn.
Rory McIlroy komst ekki í gegnum niðurskurðinn. AFP

Rory McIlroy, besti kylfingur heims, komst ekki í gegnum niðurskurðinn á Opna írska meistaramótinu í golfi en annar hringurinn var leikinn í dag.

Rory spilaði fyrsta hringinn í gær á 80 höggum, sjö yfir pari, en bætti sig um níu högg í dag og lauk leik á 71 höggi. Hann endaði á níu höggum yfir pari.

Bresku kylfingarnir Richie Ramsay, Chris Wood og Tyrrell Hatton eru ásamt fleirum efstir og jafnir á þremur höggum undir pari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert