Jason Day hættur keppni

Jason Day
Jason Day AFP

Keppnistímabilinu gæti verið lokið hjá efsta kylfingi heimslistans, Jason Day, frá Ástralíu. 

Day er hættur keppni á lokamóti PGA-mótaraðarinnar, Tour Championship. Day lék fyrstu sjö holurnar á öðrum hringnum í dag en lét þar við sitja. Skorið hjá Day var ekki slæmt. Hann var samtals tvö högg undir pari og á pari á hringnum í dag.

Day hætti einnig keppni á BMW-mótinu fyrir hálfum mánuði síðan vegna bakmeiðsla. Ekki er ólíklegt að sú sé einnig ástæðan í þessu tilfelli. Tímabilinu gæti verið lokið hjá Day. Fá mót í stærri kantinum eru í boði fyrr en á næsta ári og ekki er hann gjaldgengur í Rydar-bikarinn verandi Ástrali. 

Dustin Johnson og Kevin Chappell eru efstir á Tour Championship sem stendur á samtals 6 undir pari. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert