Haraldur Franklín lék best Íslendinganna

Haraldur Franklín Magnús lék á tveimur höggum undir pari.
Haraldur Franklín Magnús lék á tveimur höggum undir pari. Ljósmynd/GSÍ

Haraldur Franklín Magnús (GR), lék best af Íslendingunum fimm sem í dag hófu þátttöku á Nordic Golf atvinnumótaröðinni í golfi en mótið fer fram á PGA Catalunya Resort rétt við Barcelona á Spáni.

Haraldur Franklín lék hringinn á 70 höggum eða tveimur höggum undir pari og er í 11.-23 sæti þegar þetta er skrifað en ekki hafa allir kylfingar lokið leik í dag.

Birgir Leifur Hafþórsson (GKG) og Guðmundur Kristjánsson (GR) léku báðir á 71 höggi, Andri Þór Björnsson (GR), lék á 74 höggum og Axel Bóasson (GK) náði sér ekki á strik og lék á 82 höggum eða 10 höggum yfir pari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert