Sjö atvinnukylfingar fá styrk

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Ljósmynd/GSÍ

Nýverið var úthlutað úr Forskoti, afrekssjóði kylfinga, og fá alls sjö atvinnukylfingar styrk úr sjóðnum að þessu sinni. Kylfingarnir eru: Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Valdís Þóra Jónsdóttir, Birgir Leifur Hafþórsson, Axel Bóasson, Andri Þór Björnsson, Haraldur Franklín Magnús og Guðmundur Ágúst Kristjánsson.

Þetta er í sjötta sinn sem íslenskir kylfingar fá úthlutað úr Forskoti afrekssjóði sem var stofnaður árið 2012. Þær Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir og fá þær hæstu styrkina. Ólafía er með keppnisrétt á LPGA mótaröðinni í Bandaríkjunum og Valdís á LET Evrópumótaröðinni.

Sjá nánar á golf.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert