Ólafía hefur keppni klukkan 15:50

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. AFP

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur leik á 10. teig á öðrum keppnisdegi á KIA Classic-mót­inu í golfi, fjórða mót­inu í LPGA-mótaröðinni sem fram fer í Kali­forn­íu­ríki í Banda­ríkj­un­um, klukkan 15:50 að íslenskum tíma í dag eða 08.50 að staðartíma.

Sjá frétt á mbl.is: Ólafía einu yfir pari eftir tvo skolla í lokin

Ólafía Þórunn er á einu höggi yfir pari eft­ir fyrsta hring á mót­inu og er jöfn í 65.-81. sæti en bandarísku kylfingarnir Cristie Kerr og Mo Martin og suður-kóreski kylfingurinn In Gee Chun eru í forystu. Þær léku allar á 66 höggum eða sex höggum undir pari vallarins.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert