Valdís Þóra einu höggi frá niðurskurði

Valdís Þóra Jónsdóttir verður í eldlínunni í Marokkó í dag.
Valdís Þóra Jónsdóttir verður í eldlínunni í Marokkó í dag. Ljósmynd/Tristan Jones

Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur hjá Leyni, leikur annan hring sinn á á öðru móti Evrópumótaraðar­inn­ar í golfi kvenna í dag. Leikið er á Golf Dar Es Salam-vell­in­um í Mar­okkó að þessu sinni.

Skorið verður niður eftir hringinn í dag, en Valdís Þóra lék á fjórum höggum yfir pari í gær og hún er einu höggi frá niðurskurðinum fyrir hringinn.

Val­dís Þóra er að taka þátt í Evr­ópu­mótaröðinni í annað skipti, en hún endaði í 51. sæti á fyrsta móti mót­araðar­inn­ar á tíma­bil­inu á Oa­tes Victori­an-mót­inu sem haldið var í Ástr­al­íu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert