Haraldur Franklín náði frábærum árangri á Star for Life PGA Championship-mótinu sem lauk í dag á PGA Sweden National-vellinum. Mótið er hluti af Nordic League-atvinnumótaröðinni sem er sú þriðja sterkasta í Evópu.
Haraldur hafnaði í 2.-3. sæti á mótinu og missti hann af sigrinum í þriggja manna bráðabana. Haraldur lék hringina þrjá á 12 höggum undir pari, eins og tveir sænskir kylfingar og því varð að grípa til bráðabana.
Í bráðabananum fékk Haraldur Franklín par á 18. holunni en Niklas Lemke tryggði sér sigurinn með því að fá fugl. Þetta er jöfnun á besta árangri Haraldar á þessari mótaröð en hann varð í öðru sæti fyrir viku á sömu mótaröð.
Haraldur Franklín fékk þrjá fugla og einn örn á lokahringnum og var alls með tólf fugla og einn örn á hringunum þremur. Annar af tveimur skollum hans kom í dag en Haraldur Franklín var skollalaus á fyrstu 23 holum sínum á mótinu.
Andri Þór Björnsson lék á tveimur höggum undir pari og endaði í 23. sæti.