Andri og Guðmundur léku báðir á pari

Andri Þór Björnsson.
Andri Þór Björnsson. Ljósmynd/GSÍ

GR-ingarnir Andri Þór Björnsson og Guðmundur Ágúst Kristjánsson hófu leik í dag á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í golfi. Andri og Guðmundur keppa á Frilford Heath-vellinum á Englandi og stendur mótið yfir í fjóra daga. Þeir léku báðir á pari vallar í dag eða 72 höggum. Þeir eru í 25.-36. sæti en alls eru 103 keppendur sem taka þátt og má gera ráð fyrir að 25 efstu komist áfram á 2. stigið.

Þetta er í annað sinn sem þeir reyna fyrir sér á úrtökumótinu og þeir komust báðir í gegnum 1. stigið í fyrra.

Um 700 keppendur taka þátt á 1. stigi úrtökumótsins en keppt er á 8 völlum í haust og komast um 25% af keppendum á hverjum velli fyrir sig áfram á 2. stigið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert