Rut skoraði 6 mörk fyrir Ísland í 9 marka tapleik

Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik tapaði í kvöld gegn Hollandi í vináttuleik með 9 marka mun, 30:21, en liðin áttust við í Hollandi. Staðan í hálfleik var 14:8 fyrir Holland en þetta er annar leikurinn sem Ísland tapar gegn gestgjöfunum í þessari æfingaferð. Rut Jónsdóttir skoraði mest fyrir Ísland eða 6 mörk.

Mörk Íslands: Rut Jónsdóttir 6, Guðbjörg Guðmannsdóttir 3, Rakel Dögg Bragadóttir 3, Drífa Skúladóttir 2, Elísabet Gunnarsdóttir 2, Auður Jónsdóttir 1, Ragnhildur Guðmundsdóttir 1, Dagný Skúladóttir 1, Sólveig Lára Kjærnested 1 og Sigurbjörg Jóhannsdóttir 1. Berglind Íris Hansdóttir varði alls 8 skot í leiknum og Ólöf Kolbrún Ragnarsdóttir varði 7 skot.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert